Verslunarmannahelgin 2003, úttekt
jójó, siggalafó.
Nú ætla ég að rústa Fókus með því að vera fyrri til að spurja þessar klassísku spurningar; "hvað á að gera um verslunarmannahelgina?"
Möguleikar:
Ein með böllum (ráðið hvernig þið lesið þetta...)
þessi hátíð er haldin á akureyri og verður vafalítið hress og fersk. Á Akureyri er náttúrulega líklegast að maður fái gott veður, og er þá tilvalið að skella sér í hina glæsilegu sundlaug sem Akureyringar hafa upp á bjóða. Meðal hljómsveita eru Papar, Gis & the Big City, Í svörtum fötum og Írafár. Það sem fær mig persónulega til að vilja ekki fara á þessa hátíð er sú staðreynd að FM957 ætlar að vera á staðnum. Þessi hátíð hefur verið svo mikið kynnt á FM að ég er viss um að þarna verður vart þverfótað fyrir fokkin hnökkum. Samt alveg frítt að vera þarna nema náttúrulega að það kostar að vera á tjaldsvæðinu. Svo kostar líka á tónleika sem eru í KA-heimilinu og svoleiðis.
Ein með öllu (eins og hún heitir með réttu) fær 3 og hálfa stjörnu, því það verður erfitt að fara þangað og hafa ekki gaman að.
Þjóðhátíð í Eyjum
Pottþétt stemmning í eyjum í ár. Að vísu líka pottþétt vont veður, en ef þér finnst það bara hluti af stemmningunni þá þú um það. Hljómsveitirnar eru ekki af verri endanum, nei djók, þær eru ömurlegar. Þær heita sem sagt: Á Móti Sól, Skítamórall og Sálin hans Jóns míns. Brekkusöngur með Árna atvinnukrimma verður á sínum stað, en heyrst hefur að hann verði í búri oní dýpstu lundaholunni í heimakletti til að hann sleppi við leisergeislaárásir. Kosturinn við Eyjar er að þar geturu alltaf fundið þér eitthvað að gera, og þar er stútfullt af blindfullu fólki á fáránlega fáum fermkílómetrum. Verðið er samt virkilega hátt.
Eyjar 2003 fá hvorki meira né minna en 4 stjörnur (af 5 mögulegum, meðan ég man), enda alltaf hægt að bóka skemmtun þar, nema náttúrulega að þér verði nauðgað. Samkvæmt heimildum frá lögreglunni eru mestar líkur á slíku, í Eyjum í ár.
Galtalækur
þetta er svona hátíð sem þú ferð á ef þú tímir ekki að fara til eyja, eða ef þú ert 12-14 ára, eða ef þú býrð nálægt svæðinu. Nóg að gera fyrir börn og seinþroska unglinga, en frekar lítið að gera fyrir aðra þjóðfélagshópa. Írafár verður á staðnum á laugardagskvöldinu, og Í svörtum fötum á sunnudagskvöldinu. Samkvæmt heimildum mun Jón Jósep, söngvari hljómsveitarinnar, syngja ber að ofan og olíuborinn, líkt og á síðasta ári. Stóri kosturinn við Galtalæk er að þá ertu algjörlega útí náttúrunni, reyndar við rætur sjálfrar Heklu. Kostar samt fokkin 5800 á manninn að vera þarna.
Galtalækur fær 0 stjörnur af því að það má ekki drekka þar. Kommon, ef fólk vill ekki drekka þá skal það bara drullast á samkomu hjá Krossinum.
Kontríhátíð á Skagaströnd
ef þú fílar ekki Hallbjörn, þá ertu hreinræktaður hálfviti. Örugglega stórskemmtileg hátíð fyrir fólk sem komið er af léttasta skeiðinu (sem sagt í kringum 40 ára aldurinn). Verður víst með aðeins öðru sniði en venjulega, sem er synd, því hún var orðin að vinsælustu hátíð helgarinnar ef ég man rétt. Kostar einhvern 3900 kall að vera þarna yfir helgina þannig að ódýrt er það. Meðal músíkanta á hátíðinni verða Björgvin Halldórsson ásamt hljómsveitinni Brimkló (sem sagt Bó og Brimkló), KK og Magnús Eiríksson. Að sjálfsögðu mun svo kóngurinn sjálfur sletta úr klaufunum líka.
Kontríið fær svona 2 og hálfa, hún hentar ekki mínum aldurshóp en er afar sniðug fyrir fjölskyldufólk. Plús að það má drekka, öfugt við skítaGaltalæk.
Hanga heima
Tvímælalaust síðri kostur en allir hinir (fyrir utan fokkin Galtalæk). Þessi kostur verður samt fyrir valinu hjá mér þar sem ég verð örugglega að vinna. Svo á ég ekki ullarpeysu.