Kæru vinir!
Sumrinu er að ljúka. Mér er skítsama þótt að hitamælirinn sýni ennþá tveggja stafa tölu, sumrinu lýkur í mínu hjarta með skólabyrjuninni. Skólinn hjá mér byrjar einmitt í fyrramálið með eldhressum stærðfræðigreiningarfyrirlestri. Maður bara iðar í skinninu að fara að glósa, eins og lífið liggi við, um tvinnfallagreiningu og fleira sjúkt spennandi dót. En er þá ekki tímabært að gera upp sumarið?
Sumarið 2006.Ég var búinn að ákveða í vor að kalla þetta sumar FÓTBOLTASUMARIÐ MIKLA, en kaldhæðni örlaganna varð til þess að ég var meiddur allt sumarið og er þetta lengsti tími á ævinni sem ég hef eytt án þess að spila fótbolta.
Margur myndi halda að þetta hafi gefið mér gott tækifæri til að gera brjálað spennandi hluti og endurmeta líf mitt, móta glæsta framtíð doktorsins og leggja grunn að geggjuðu lífi. Í staðinn nálgast ég óðum það takmark mitt að klára
EXTREME BLAST BILLIARD-leikinn, sem er lesendum að góðu kunnur. Metið mitt er 17. borð.
Einnig hef ég náð að spila mikið af Pro Evolution og tel mig orðinn fremstan landsmanna í þeim leik.
Ég hef náð að drekka ágætlega mikið og hjálpaði tveggja vikna menningarreisa til Tenerife mikið þar. Einnig tókst mér að lesa fyrir bráðskemmtilegt sumarpróf, sem ég á að vísu ennþá eftir að fá niðurstöðu úr, og fylgjast afar náið með heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Vinnan var að sjálfsögðu nokkuð fyrirferðarmikil eins og hjá öðru skólafólki og var ég bráðheppinn með vinnu og vinnufélaga. Algjör klassi.
Það sem ég sé hins vegar mest eftir varðandi sumarið er að hafa nákvæmlega ekkert farið út á land svo ég muni til, fyrir utan að hafa tvisvar væflast útí rokrassgatið sem Snæfellsnesið er. Ég sem hafði ætlað mér að heiðra Vestfirði með nærveru minni í fyrsta sinn, annað hvort með boltanum eða til að fara og spila mýrarbolta. Svo hefði maður viljað fara til Akureyris því þar er best að vera þegar sólin skín, og kíkja á æskuslóðirnar í Skógum og tékka stemmarann þar. En svona er þetta, margt fer á mis og svoleiðis (rím).
Einnig hefði ég viljað grilla meira og drekka meiri bjór en það ku nú ekki vera svo hollt svo það er kannski bara gott.
Örugglega er ég að gleyma einhverju varðandi sumarið en það verður bara svo að vera og ekkert við því að gera (rím). Rímandi um það að þá var ég einmitt að velta því fyrir mér um daginn hvað það ætti örugglega vel við mína gömlu sál að kíkja á hagyrðingakvöld. Ég held það sé ekkert heitara eða feitara í henni veröld en að skella góðum fyrriparti fram og fá drepfyndinn seinnipart tilbaka á nótæm frá einhverjum af þessum meisturum eins og Bjarna frá Möðruvöllum og Ómari Ragnarssyni. Ég tékka þetta einhvern tímann.
Hendi á ykkur fyrripart en þið megið alveg kommenta þótt þið getið ekki botnað. Hafið það gott og haldið kúlinu.
Sumarfríi lýkur senn,sólin bráðum kveður.